Skilmálar

Upplýsingar um seljanda:

Umsjónaraðili netverslunarinnar www.nisti.is er Nisti ehf., kt. 590510-0410. Kringlan 4-12, 103 Reykjavík. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu á skarti, fylgihlutum- og gjafavörum Virðisaukaskattsnúmer Nisti ehf er 105958.

Verð:

Öll verð í netverslun eru með 24% virðisaukaskattsi (VSK). Vinsamlega athugið að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara vegna gengismála, rangra verðupplýsinga eða prentvillna.

Greiðslumöguleikar:

Boðið er uppá að greiða með greiðslukorti, debetkorti, netgíró og pei í netverslun www.nisti.is

Afhendingarskilmálar:

Hægt er að sækja vöruna í verslunina SIX, Kringlunni eða fá vöruna senda með Íslandspósti eða Dropp. Afhendingartími er 2-3 dagar frá því að pöntun er gerð.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur:

Kaupandi hefur 14 daga til þess að hætta við kaupin og er varan endurgreidd að fullu ef neðangreind skilyrði eru uppfyllt. Varan skal vera ónotuð, henni sé skilað í góðu lagi, í upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með. Skilafresturinn hefst þegar varan er afhend skráðum viðtakanda. Ekki er hægt að skila eyrna- og líkamslokkum. Hægt er að endursenda vöru til SIX / Nisti ehf. Kringlunn, 103 Reykjavík. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenda. Að öðru leyti vísast um neytendakaup nr. 48/2003. Athugið að sér merktri vöru er ekki hægt að skila nema um ranga eða skemmda vöru sé að ræða.

Höfundaréttur og vörumerki:

Texti, grafík, logo, myndir og allt efni á www.nisti.is eru í eigu Nisti ehf og þeirra birgja. Öll afritun og endurdreifing er bönnuð nema með skiflegu leyfi frá Nisti ehf. www.nisti.is er skráð vörumerki í eigu Nisti ehf. og ekki má nota það í tengslum við neina vöru eða þjónustu.

Trúnaður:

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

 

Varnarþing:

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.

Hafa samband:

Velkomið að hafa samband í gegnum netfangið info@nisti.is eða í síma 776 0666 ef einhverjar spurningar vakna.

Öryggi og persónuvernd á vefnum:

Þegar þú notar vefinn www.nisti.is þá verða til upplýsingar um heimsókn þína. Nisti  miðlar þeim ekki til annara.

Nisti virðir friðhelgi perónuupplýsinga viðskiptavina sinna. Með því að heimsækja vefinn lýsir þú þig samþykkan skilmálum okkar um persónuvernd og öryggi.

 

Hvað eru vafrakökur (e. Cookies)

Cookie er lítil textaskrá sem vefsvæðið getur sett inn á tölvuna þína eða önnur snjalltæki þegar vefsvæði www.nisti.is  er heimsótt í fyrsta sinn. Textaskráin er geymd á vefvafra notenda og vefur Nisti þekkir skrána. Upplýsingarnar í textaskránni má nota til að fylgjast með vafri notenda á vefsvæðinu, bæta þjónustuna o.fl. Þetta gerir það mögulegt að Nisti getur sent ákveðnar upplýsingar í vafra notenda og getur gert upplifun notanda ánægjulegri. Cookies geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar. 

 

Notkun Nisti á vafrarakökum

Með því að samþykkja skilmála Nisti um notkun á cookies er fyrirtækinu m.a. veitt heimild til þess að:

  • bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna,
  • að gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum,
  • að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun hennar,
  • að birta notendum auglýsingar
  • að safna og senda tilkynningar um fjölda notenda og umferð um svæðið,

Nisti notar Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

Þjónusta Siteimprove er nýtt á vefnum með svipuðum hætti og Google Analytics, til dæmis til að telja heimsóknir og til að finna brotna tengla sem notendur smella á sem og bæta upplifun notenda inn á vefnum.  

Persónulegar upplýsingar sem við söfnum

Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, netfangi og símanúmeri í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér eða vegna annarra samskipta við þig. Til dæmis skráum við þær persónugreinanlegu upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að koma til skila þeirri vöru sem þú kaupir. Einnig fjármálatengdar upplýsingar og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir. Allar persónuupplýsingar sem kunna að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við skilmála GDPR frá 2018

Ef þú skráir þig á póstlista eða gefur upp netfangið þitt sendum við þér fréttabréf. Ef þú færð nú þegar tölvupósta frá fyrirtækinu en vilt hætta að fá þá er hægt að senda okkur póst á info@nisti.is .

Neðst á öllum markpósti sem Nisti sendir er einnig hnappur „afskrá af póstlista“ sem býður upp á að láta fjarlægja það netfang sem pósturinn var sendur á af póstlistanum.

Að versla á vefnum okkar

Við leggjum okkur fram um að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá öryggisstaðla sem viðeigandi eru eftir eðli upplýsinganna, hvort sem þær upplýsingar eru fengnar og/eða geymdar fyrir milligöngu netsins eða ekki. Við gerum allt sem skynsamlegt og viðeigandi getur talist til að koma í veg fyrir að slíkar upplýsingar glatist, verði stolið, óviðkomandi fái aðgang að þeim, þær verði opinberaðar, afritaðar, notaðar, þeim breytt eða eytt. Við leggjum sérstaka áherslu á að tryggja öryggi upplýsinga þegar keyptar eru vörur í gegnum vefsíðuna. Vefurinn notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag. Það gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.

SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.